Syndis hefur ráðið einn reynslumesta netöryggissérfræðing Svíþjóðar
David hefur yfir 25 ára reynslu á sviði netöryggismála og er ráðning hans mikilvæg viðbót við öflugt teymi Syndis og styrkir fyrirtækið í sókn á alþjóðamarkað
Reynsla sem styrkir sókn Syndis á alþjóðavettvangi
David hefur yfir 25 ára reynslu á sviði netöryggismála og hefur gegnt fjölbreyttum hlutverkum hjá þekktum fyrirtækjum eins og Kaspersky Lab, TrueSec AB og Outpost24. Hann er þekktur í Svíþjóð á sínu sviði, þar sem nálgun hans á netöryggi hefur meðal annars verið sýnd í sænska sjónvarpsþættinum „HACKAD“, þar sem raunverulegar árásir voru framkvæmdar í beinni útsendingu. David er einnig þekktur fyrirlesari og hefur reglulega tekið þátt í ráðstefnum um allan heim. Undanfarið hefur hann leitt sitt eigið netöryggisfyrirtæki, boðið upp á ráðgjöf og þróað háþróaðar öryggislausnir og áætlanir, sem endurspegla áhuga hans á nýsköpun.
David er í grunninn hakkari og hefur því djúpa þekkingu á netárásum, hvernig þær fara fram og hvernig best er að verjast þeim. Stefna Syndis byggir á að skilningur á sóknarleik sé nauðsyn til að tryggja góða vörn.
"
Ég er gríðarlega spenntur að ganga til liðs við Syndis, þegar kemur að hugmyndafræði og sýn þá deilum við þeirri sömu skoðun um að gera internetið að öruggari stað fyrir alla. Netöryggi á ekki að vera munaðarvara heldur aðgengileg þjónusta fyrir alla, því náum ekki bara með hagkvæmum og skilvirkum lausnum heldur líka með því að virkja fólk með okkur og auka þekkingu allra. Teymið hjá Syndis samanstendur af gríðarlega hæfu fólki bæði þegar kemur að sókn og vörn í netöryggi, samsetning sem hefur sýnt sig að skilar góðum árangri við að auka þroska viðskiptavinarins. Ég hef fylgst með Syndis úr fjarlægð í langan tíma en fæ nú loks að vinna með þessu öfluga félagi og hafa áhrif á þessum spennandi tímum.
David Jacoby • CSO of Syndis
Stefna Syndis er að "unhack the Planet"
Víðtæk reynsla Davids verður ómetanleg fyrir áframhaldandi vöxt Syndis á bæði sænskum og alþjóðlegum vettvangi. Sérfræðiþekking hans mun ekki aðeins auka vöru- og þjónustuframboð okkar, heldur einnig dýpka og breikka þekkingu Syndis.
"
Við trúum því að reynsla hans og leiðtogahæfileikar muni auka enn okkar hraða vöxt og við gætum ekki verið ánægðari með að fá David í okkar hóp. Við hlökkum til að nýta sérfræðiþekkingu hans og framtíðarsýn til að styrkja stöðu okkar á nýjum mörkuðum. Við ætlum okkur að „unhack the Planet“.
Anton Már Egilsson • CEO of Syndis